Erna Höskuldsdóttir | miðvikudagurinn 17. desember 2014
Gleðileg jól
Jólabíó verður fyrir nemendur á sal skólans kl. 10 fimmtudaginn 18. desember. Nemendaráð sér um viðburðinn og bíður upp á popp, saltstangir og drykk með myndinni. Nemendur á yngsta-, og miðstigi þurfa ekki að hafa með sér íþróttatöskur.
Jólamatur mötuneytisins verður í hádeginu fimmtudaginn 18. desember.
Litlu jólin eru á föstudaginn 19. desember kl. 10
Það sem nemendur þurfa að hafa í huga er:
- að mæta í jólaskapi og í betri fötum
- að heimilt er að hafa meðferðis sparinesti í anda jólanna
- að taka með sér pakka í pakkaskipti fyrir um 800 – 1000 kr. hvern pakka.
- Enginn þarf að taka með sér kerti því fallegu krukkurnar sem voru gerðar á skreytingardaginn munu skreyta borðin.
Dagskrá litlu jólanna er á þessa leið:
Nemendur byrja daginn inn í sinni stofu með sínum umsjónarkennara þar sem farið er yfir jólakortin, pakkaskipti og eiga þar notalega stund. Allir nemendur koma svo saman á sal og dansa í kringum jólatréð og syngja jólalög. Ef söngurinn heyrist vel er aldrei að vita nema einhverjir gestir renni á hljóðið .........
Litlu jólunum lýkur um kl. 11:45 , þegar allir hafa gengið frá í sínum stofum og kvatt sína kennara.