Erna Höskuldsdóttir | þriðjudagurinn 13. janúar 2015
Stillum saman strengi - Annað lestrarátak
Annað lestrarátak skólaársins er nú hafið og stendur næstu fjórar vikurnar. Hver námshópur hefur valið sér "sérstök" óska viðfangsefni sem hópurinn vinnur að í sameiningu með því að vera dugleg að lesa. Áhersla er á lestur heima og í skólanum í 15 mínútur í hvert sinn. Í þessari viku ætlar Bogga að lestrarprófa nemendur aftur og eins í lok átaksins.