Erna Höskuldsdóttir | miðvikudagurinn 5. september 2018
Foreldrafræðsla á Ísafirði
Mánudaginn 10. september kl. 20. ætlar Sólveig Norðfjörð sálfræðingur, að bjóða upp á fræðsluerindi fyrir foreldra 5 og 6 ára barna.
Erindið sem verður um 60 mínútur að lengd, verður haldið í salnum á 4. hæð Stjórnsýsluhússins á Ísafirði.
Á eftir erindinu verður svo boðið upp á spurningar og umræður.
Ókeypis aðgangur.