Vorgleði
Miðvikudaginn 30. maí var sameiginleg vorgleði Grunnskólans og Leikskólans Laufás. Farið var með rútum til Hrafnseyrar þar sem Valdimar staðarhaldari tók á móti okkur og sagði okkur frá staðnum, höfðingum á Vestfjörðum og svo Jóni forseta. Einnig var hann búinn að útbúa spruningar sem nemendur spreyttu sig á og leituðu svara við á safninu. Veðurblíðan var eins og best var á kosið og nemendur og starfsfólk skólans áttu notalega stund saman úti í sólinni. Burstabærinn var vinsæll hjá nemendum sem og stóra brekkan fyrir ofan hann. Dagurinn endaði niður á víkingasvæði þar sem foreldrafélög beggja skólanna tóku á móti okkur með grilluðum, gómsætum hamborgurum. Á víkingasvæðinu var svo brugðið á leik með fallhlíf og andlitsmálun.