Erna Höskuldsdóttir Erna Höskuldsdóttir | þriðjudagurinn 30. apríl 2019

Útiíþróttir og vorið

Nemendur af miðstigi á ærslabelgnum í góða veðrinu í dag
Nemendur af miðstigi á ærslabelgnum í góða veðrinu í dag

Á morgun 1. maí er Baráttudagur verkamanna og því frídagur í skólanum. Nemendur skilja ekkert í öllum þessum frídögum að undanförnu, sérstaklega þessir yngstu.

 

Það er allt að komast á fullt skrið á síðustu vikum skólastarfsins og nóg um að vera. En það er gjarnan þannig að vikurnar í maí líða mjög hratt þegar páskarnir eru svona seint eins og á þessu ári. Því skiptir máli að nemendur nýti tímann sinn vel og stefni áfram að markmiðum sínum, lesi minnst 5x í viku heima og í skóla og fl.

 

Á mánudaginn 29. apríl var síðasti inni íþróttatíminn á skólaárinu sem þýðir að á fimmtudaginn 2. maí verður "fyrsti" í útií þróttum. Það þarf að huga að því að vera klæddur til útivistar, huga að skófatnaði og gott að hafa þurra sokka í töskunni. Nemendur þurfa að fara í sturtu eftir úti íþróttir.

 

 

« 2024 »
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Könnunin

Valdir tenglar

Vefumsjón