Undankeppni Stóru upplestrarkeppninnar í 7. bekk
Í dag, fimmtudaginn 22. febrúar var haldin undankeppni í "litlu skólunum" fyrir Stóru upplestrarkeppnina sem verður haldin í Hömrum 13. mars n.k. Það fyrirkomulag hefur verið undanfarin ár, að haldin er sameiginleg undankeppni grunnskólanna á Þingeyri, Suðureyri og Flateyri. 2 - 3 keppendur eru valdir úr hópi lesara úr þeim skólum til þess að taka þátt í Stóru upplestrarkeppninni ásamt Ísfirðinum, Súðvíkingum og Bolvíkingum.
Að þessu sinni var keppnin haldin á Suðureyri. Lesarar voru alls 11 úr þessum þremur skólum. Við hér í G.Þ. áttum 3 lesara, þau Bjarna Viktor, Davíð Navi og Jovinu Maríönnu, sem stóðu sig með stakri prýði - eins og allir lesarar gerðu reyndar. Þriggja manna dómnefnd komst að þeirri niðurstöðu að lesararnir 3 sem færu fyrir hönd þessara skóla væru Svanfríður Guðný Þorleifsdóttir og Stefán Chiaophuang bæði frá Grunnskólanum á Suðureyri og Sylvía Jónsdóttir frá Grunnskóla Önundarfjarðar.
Við óskum þeim að sjálfsögðu til hamingju og þökkum fyrir góða og skemmtilega keppni.