Erna Höskuldsdóttir | mánudagurinn 14. september 2015
Sundlaugin tóm- opnar á fimmtudaginn 17. sept.
Vegna viðhalds og viðgerða er sundlaugin tóm og verður ekki opnuð fyrr en 17. september nk. Því miður var ekki sund í dag hjá elsta og yngsta stigi og enginn komst í heita sturtu eftir íþróttir. Það var samt ótrúlega gaman og spennandi að fara aðeins í laugina og fatta og sjá hvernig laugin dýpkar. Sumir spiluðu blak og aðrir hlupu á milli bakkanna í staðinn.