Sundlaugin tóm
Skólasund fellur niður vegna viðhalds í sundlauginni vikuna 20.-22. nóvember. En þessi vika er skemmtilega stutt vegna vetrarfrís og starfsdags kennara. Hægt er að fara í sturtu og því falla skólaíþróttir ekki niður. Einnig minnum við á að íþróttir utan skóla falla ekki niður þó að vatnið vanti í sundlaugina. Það verður því körfuboltaæfing kl. 17:00 á morgun miðvikudag eins og venjulega. Grunnþjálfun/íþróttaskóli kl. 14:30 á fimmtudaginn fyrir yngstastig og svo fótbolti, yngri kl. 17:00 og eldri kl.18:00.
Stefnt er á að dæla vatni aftur í laugina fyrir helgi og ætti hún þá að vera orðin heit og notaleg mánudaginn 25. nóv. Ef lauginn verður orðin heit á sunnudag verður byrjað að hleypa ofan í, þannig að það er um að gera að fylgjast með fyrir þá sem verða farnir að sakna þess að stinga sér ofan í en sunnudaginn 24. nóvember verður afmælismót Magnúsar Guðmundssonar í Boccia haldið í íþróttahúsinu og hefst mótið kl. 12:30.
Vonum að þið hafið átt gott vetrarfrí