Erna Höskuldsdóttir | þriðjudagurinn 22. febrúar 2022
Skóli fellur niður miðvikudaginn 23. febrúar vegna veðurs
Appelsínugul viðvörun er í gildi samkvæmt veðurspá í fyrramálið 23. febrúar til miðnættis. Skólahald í öllum skólum Ísafjarðabæjar hefur verið fellt niður í samráði við sviðstjóra.
Nýjar reglur um skólahald þegar óveður geysar voru samþykktar í bæjarráði í síðustu viku, þar segir:
Þegar appelsínugular eða rauðar viðvaranir Veðurstofu Íslands eru í gildi hefur skólastjóri heimild, í samráði við sviðsstjóra, að fella niður skólastarf (grunn- og leikskólar í Ísafjarðarbæ). Sé það gert þarf að tryggja að hægt verði að opna skóla fyrir börn neyðaraðila ef brýn nauðsyn krefur og er það þá á ábyrgð foreldra að tilkynna komu barnanna í skólann. Skólastjórnendur, í samráði við sviðsstjóra, meta þá hvort nauðsynlegt sé að opna skólann fyrir þessi börn.
Ef skólahald er fellt niður er slíkt auglýst á vefsíðu skólans, Facebook síðu skólans, svo og í tölvupósti til foreldra, og eigi síðar en kl. 7:00 að morgni dags.
Ef skóli fellur niður um lengri tíma vegna veðurs eru kennarar tilbúnir með verkefni eða námsáætlun, þannig að nemendur dragist ekki aftur úr í námi. Þessi verkefni geta verið með ýmsum hætti. Foreldrar/nemendur geta verið í tölvu- eða símasamskipum við kennara varðandi námið.
Reglurnar verða birtar á heimasiðu skólans og sendar foreldrum, þær má einnig finna hér.