Erna Höskuldsdóttir | þriðjudagurinn 5. júní 2012
Skólaslit 1.júní
Nemendur voru útskrifaðir við hátíðlega athöfn í Þingeyrarkirkju föstudaginn 1. júní. Nemendur stóðu sig með miklum sóma og hlaut Patrekur Ísak Steinarsson viðurkenningu fyrir námsárangur í 10. bekk og Ævar Höskuldsson fyrir árangur í dönsku. Eftir útskrift var kaffisala Kvenfélagsins Vonar í félagsheimilinu og sýning listmuna og verka nemenda í skólanum.