Erna Höskuldsdóttir | miðvikudagurinn 13. september 2017
Skólarútuferð í Arnarfjörð
Fimmtudaginn 14. september verður hátiðarsprenging í fyrirhuguðum Dýrafjarðargöngum kl. 16 Arnarfjarðar megin. Þar sem nemendur við Grunnskólann á Þingeyri minntu á nauðsyn þessa gangna á "grænum degi" fyrir 8 árum með því að hefja gröft inni í firði langar okkur til að vera viðstödd á þessum merku tímamótum í nafni G.Þ. og æskunnar.
Rúta fer frá skólanum kl. 15 fyrir nemendur og ef foreldrar vilja koma með er þeim velkomið að slást í för með okkur. Elsta stig verður enn í skólanum en aðrir þurfa að koma aftur þar sem þeirra skóladagur endar kl. 14
Endilega hvetjið nemendur til að mæta