Skólahlaupið-Ólympíuhlaupið
Skólahlaupið verður haldið í G.Þ. föstudaginn 23. september. Ræst verður í hlaupið kl. 10:15 (mæting kl. 9:55).
Börnin á Laufási taka þátt í hlaupinu og öllum foreldrum og forráðamönnum ásamt velunnurum skólans er velkomið að hlaupa með okkur líka. Eftir hlaupið verður farið í sund.
Með Ólympíuhlaupi ÍSÍ er leitast við að hvetja nemendur skólanna til þess að hreyfa sig reglulega og stuðla þannig að betri heilsu og vellíðan. Nemendur geta valið á milli vegalengdanna 2,5 km, 5 og 10 km. Það skal tekið fram að hér er fyrst og fremst lögð áhersla á holla hreyfingu og að allir taki þátt og geri SITT besta Minnum á verkefnið Göngum í skólann í leiðinni. Munum að nota hjálm þegar við hjólum (hlaupahjól og línuskautar).
Skóladegi lýkur hjá öllum námshópum eftir hádegismat vegna UTÍS ráðstefnu sem kennarar eru að sækja kl. 13.