Skólaárið 2013-14 að hefjast
Nú er sumarfríið brátt á enda og haustið handan við hornið með öllu sem því fylgir. Kennarar eru komnir til starfa og sækja nú námskeið á Ísafirði með öðrum kennurum bæjarins. Nýr skólastjóri Stefanía Ásmundsdóttir hóf störf núna 1. ágúst og hefur nýtt dagana fram að þessu til að setja sig inn í starfið og kynnast skólanum. Enn og aftur þökkum við Gunnlaugi Dan samstarfið á síðustu árum. Einhverjar framkvæmdir hafa átt sér stað í skólanum í sumar meðal annars er búið að mála stofurnar sem opnað var á milli í fyrra og gera huggulegt.
Eins og sjá má á dagatalinu hér til hægri verður Grunnskólinn á Þingeyri settur 22. ágúst kl. 11. Innkaupalista fyrir bekki/hópa má finna á greininni hér til hægri. Hlökkum til að sjá ykkur hress og kát eftir sumarfríið. Bestu kveðjur starfsfólk G.Þ.