Lestrarátaki lokið
Nú er 2ja vikna formlegu "lestrarátaki" lokið og nemendur hafa svo sannarlega sýnt enn og aftur hvað í þeim býr.
Búið er að telja saman lesnar mínútur á mið- og elsta stigi, en þar sem mikil veikindi eru á yngsta stigi, er ekki búið að telja saman mínúturnar þar.
Gaman er að segja frá því að miðstigið las samanlagt 4118 mínútur, sem gera 68 1/2 klukkustund eða rúmlega 2 1/2 sólarhring. Þetta gerði miðstigið að stærðfræðidæmi og voru eiginlega hálf hissa á útkomunni :-)
Elsta stigið las samtals 3.997 mínútur, en þar eru líka færri hausar en á miðstiginu.
Það er alltaf skemmtilegt í lok "átaks" að leika sér með tölurnar, en niðurstaðan verður alltaf sú sama: Allir eru að leggja sig fram og gera sitt besta.
Nú er að hefjast 2ja vikna "stærðfræðiátak" sem verður aðallega fólgið í því að nemendur reikna alls konar dæmi í skóla og/eða heima og af því það er kominn desember verður jólastærðfræði kannski áberandi.
Góða skemmtun, kennararnir.