Jónína Hrönn Símonardóttir | miðvikudagurinn 26. febrúar 2020
Krakkasvarið frá GÞ
Skólinn okkar fékk áskorun frá Brekkuskóla á Akureyri að taka þátt í Krakkasvarinu sem er liður í Krakkafréttum.
Upptökur fóru fram í dag - og verður sýnt frá því í Krakkafréttum á morgun, fimmtudaginn 27. feb.
Endilega horfið :-)
Í tilefni dagsins var kötturinn sleginn úr tunnunni í tómstund í dag og fengu allir á mið- og yngsta stigi rúsínur og annað "hollt nammi". Einnig voru flestir í náttfötum í tilefni dagsins, en nemendaráð stóð fyrir náttfatadegi.
Alltaf gaman að brjóta upp hversdaginn.