Erna Höskuldsdóttir | föstudagurinn 4. desember 2015
Jólaföndur foreldrafélags G.Þ.
Hið árlega jólaföndur verður haldið í Grunnskólanum á Þingeyri sunnudaginn 6. desember kl. 13-16.
Laufabrauðið verður á sínum stað og kostar 100 kr. stk. Einnig verður hægt að skreyta piparkökur, föndra snjókarl og fleira (verð 200-1200 kr.) Posi á staðnum.
Minnum á að gott er að taka með sér hnífa og laufabrauðsjárn ef maður á til að skera laufabrauðið.
9.-10. bekkur verður með veitingar til sölu vegna fjáröflunar á skólaferðalagi.
Hlökkum til að sjá ykkur og eiga notalegan dag saman.
Með jólkveðja
Foreldrafélag G.Þ.