Erna Höskuldsdóttir | fimmtudagurinn 5. desember 2013
Jólaföndur
Hið árlega jólaföndur verður haldið í Grunnskólanum á Þingeyri sunnudaginn 8. desember kl. 13-15.
Laufabrauðið verður á sínum stað.
Einnig verður hægt að skreyta piparkökufólk, mála á keramik, skreyta kerti og föndra flott föndur úr Ólátagarði (verð frá 90 kr. - 1500 kr.).
Minnum á að gott er að taka með sér hnífa, laufabrauðsjárn, pensla og pappírslím ef þið viljið nota ykkar eigið. Þessir hlutir verða einnig á staðnum.
10. bekkur verður með kaffihús.
Posi verður á staðnum.
Foreldrar, ömmur og afar, komið með börnunum og eigum notalegan stund saman.
Með jólakveðju Foreldrafélag G.Þ.