Íþróttaskóli, hreystiæfingar, hjóla kraftur, fjölskyldutími og blak
Æfingar fyrir 1.-4. bekk og elstu börnin í leikskólanum hefjast í dag mánudaginn 9. janúar kl. 17:10-18:00.
Æfingar verða framvegis á mánudögum fram á vor 1x í viku í umsjón Janne Kristiensen. HSV rukkar lágmarksgjald fyrir æfingarnar, nánari upplýsingar gefur Janne.
7.-10. bekk stendur enn til boða að mæta á þriðjudögum og fimmtudögum í hreystitíma kl. 17-18:30 í umsjón Ernu. Körfuboltaþjálfari frá Vestra mætir hálfsmánaðarlega á fimmtudögum í þá tíma.
Hjólakraftur mun einnig halda áfram með sínar æfingar í umsjón Guðrúnar Snæbjargar og Sigmundar Fríðars. Hjólakraftur er á miðvikudögum kl. 16:30. Nánar auglýst á facebook og inni í skóla. Allir velkomnir en foreldrar þurfa að meta hvort yngri ráði við æfingarnar.
Minnum einnig á fjölskyldutíma Höfrungs á sunnudögum kl. 10-12 þar sem allir fá tækifæri til að nýta íþróttasalinn og efla áhuga á hollri hreyfingu og samveru.
Blakæfingar fyrir 7. bekk og eldri hefjast aftur þegar Thio mætir aftur eftir frí, þær eru á sunnudögum kl. 14-15:30. Áhugasamir geta rætt við Sigmund Fríðar og/eða Guðrúnu Snæbjörgu.
Með kveðju Íþróttafélagið Höfrungur