Íþróttahátíð "litlu"skólanna
Sl. föstudag þá var íþróttahátíð "litlu" skólanna haldinn í íþróttamiðstöðinni á Þingeyri. 82 nemendur frá Flateyri, Suðureyri, Súðavík og Þingeyri. Nemendur, sem allir voru í 1.-7. bekk, léku sér saman í blönduðum hópum á 9 mismunandi stöðvum í íþróttahúsinu. Verkefni stöðvanna voru erftirfarandi: bandý, boccia, skotbolti, stinger, minute to win it þrautir, töfluleikur, limbó, boðhlaup og mennskir pýramídar. Hátíðin tókst rosalega vel og nemendur skemmtu sér konunglega. Markmið hátíðarinnnar er að minna á mikilvægi hreyfingar og hittast og kynnast. Í lok hátíðar hittust allir í pizzu og djús sem allir áttu svo sannarlega skilið. Pizza er uppáhalds matur flestra nemenda á þessum aldri en grófleg könnun var gerð á því þegar nemendur hittust hér í skólanum núna í september. Við þökkum eldri nemendum skólans kærlega fyrir aðstoðina og gestunum fyrir komuna. Hlökkum til að mæta á Flateyri næsta ár