Íþróttaæfingar í íþróttahúsinu
Æfingar fyrir 1.-4. bekk hefjast í dag fimmtudaginn 7. september kl. 17:10-18:00.
Æfingar verða framvegis á mánudögum í umsjón Janne Kristiensen og fimmtudögum í umsjón Guðrúnar Snæbjargar.
HSV rukkar lágmarksgjald fyrir æfingarnar, nánari upplýsingar gefur Janne og Guðrún.
Hreystitímar fyrir 7.-10. bekk hefjast eftir miðjan september í umsjón Ernu.
Hjólakraftur mun einnig halda áfram með sínar æfingar í umsjón Guðrúnar Snæbjargar og Sigmundar Fríðars. Hjólakraftur er á miðvikudögum kl. 17:00.
Nánar auglýst á facebook og inni í skóla. Allir velkomnir en foreldrar þurfa að meta hvort þeir sem yngri eru ráði við æfingarnar.
Minnum einnig á fjölskyldutíma Höfrungs á sunnudögum kl. 10-12 þar sem allir fá tækifæri til að nýta íþróttasalinn og efla áhuga á hollri hreyfingu og samveru.
Blakæfingar fyrir 7. bekk og eldri verða auglýstar þegar þær hefjast.