Í vikulok
Það hefur verið nóg við að vera þessa vikuna, eins og áður. Þemadagar tókust mjög vel, fjölbreytt verkefni sem voru unnin, sjá myndir. Afraksturinn verður svo til sýnis á "rauða deginum".
Í næstu viku verður Ungmennaþing á Ísafirði, þar sem m.a. nemendum í 8. -10.bekk er boðið að koma og taka þátt. Við buðum nemendum upp á val, þ.e. hvort þeir vildu fara eða ekki og voru nokkrir nemendur sem þáðu það boð. Starfsmaður fer með þeim en dagskráin á Ísafirði er frá kl 09:00 - 12:30. Hér má finna upplýsingar um þingið.
Á fimmtudaginn fara nemendur 3. -5. bekkjar á Ísafjörð að sjá Djáknan á Myrká. Sýningin byrjar kl 09:30 og gert er ráð fyrir að hún sé í tæpa klukkustund.
Foreldraviðtöl er einnig í næstu viku. Foreldrar ská sig á tíma í gegnum Mentor.
Með bestu kveðju og góða helgi!