Erna Höskuldsdóttir | laugardagurinn 16. mars 2019
Hjólavika á Þingeyri
Þeir nemendur sem koma með hjól á þriðjudaginn í skólann fá tækifæri til að taka þátt í skemmtilegu verkefni sem ber heitið Hjólavika á Þingeyri. Þeir nemendur skólans sem vilja taka þátt þurfa að koma í skólann á hjóli þriðjudaginn 19. mars. Í boði er stillingar og yfirferð til að gera hjólin klár fyrir sumarið. Þeir nemendur sem taka þátt er einnig boðið í morgunmat. Minnum á hjálma og að elstu nemendurnir geta fengið lánuð hjól sem ekki eiga.
Auglýsing í viðhengi!
Þátttaka er val nemenda, þeir sem koma ekki á hjólum verða í tímum samkvæmt stundaskrá.