Erna Höskuldsdóttir | mánudagurinn 17. desember 2012
Heimsókn frá rithöfundi og jólabingó
Það er nóg að gera hjá nemendum í G.Þ. Rithöfundurinn Dagbjört Ásgeirsdóttir kom í heimsókn í Grunnskólann á Þingeyri. Dagbjört er leikskólakennari og rithöfundur en hún kom til að hitta krakkana á yngsta stigi og kynna fyrir þeim bók sína Gummi fer á veiðar með afa. Sú bók er fyrsta bókin af fimm í bókaröðinni um þá félaga Gumma og Rebba. Allir höfðu gaman af og vonandi hefur heimsóknin glætt áhuga einhverra á að skrifa og semja sögur.
Á föstudaginn komu svo nemendur og kennarar saman á sal skólans í síðasta tímanum og spiluðu "Jólabingó" sem vakti mikla kátínu, sérstaklega þeirra sem unnu til skemmtilegra jólavinninga.