Erna Höskuldsdóttir | laugardagurinn 8. nóvember 2014
Haustönn lokið - Vetrarönn hefst
- Haustönninni lauk núna föstudaginn 7. nóvember og vetrarönn hefst mánudaginn 10. nóvember.
- Nemendur fá sent heim einkunnir og mat á haustönn mánudaginn 10. nóvember ásamt tímum í foreldraviðtöl.
- Í viðtölunum verður farið yfir markmið haustannar með umsjónarkennurum og ný markmið sett fyrir vetrarönn.
- Vetrarönn lýkur 27. febrúar (sjá nánar skóladagatal)
- Framundan er löng helgi, nemendur mæta EKKI í skóla föstudaginn 14. nóv og mánudaginn 17. nóv
Góða helgi