Erna Höskuldsdóttir | þriðjudagurinn 4. mars 2014
Hætt við lokun sundlaugarinnar
Hætt hefur verið við lokun sundlaugarinnar.Umframorka verður ekki veitt að svo stöddu, en fengist hefur undanþága til kaupa á forgangsorku meðan skerðingar standa yfir í þessa tvo mánuði sem til stóð að loka. Skerðingar á umframorku hafa því ekki áhrif á skólastarfið og tíma nemenda í sundlauginni. Við höldum því ótrauð áfram með sundkennslu samkvæmt stundaskrá hjá 5.-10.bekk. 1.-4.bekkur byrjar svo síðasta námskeiðið sitt í næstu viku, mánudaginn 10.mars og höldum við áfram næstu þrjár vikur þar á eftir. Nánar um það í tölvupósti þegar nær dregur.
Góðar stundir & hittumst í sundi