Grunnskólinn á Þingeyri skólaárið 2022-2023
Skólasetning 2022-2023 verður í formi viðtala. Foreldrar/forráðamenn mæta með sínu barni í viðtal hjá umsjónarkennara. Viðtalstímar hafa verið sendir út í tölvupósti í gegnum Mentor.
Nemendur skólans verða 38 talsins, kennt verður í 3 námshópum (yngsta stig, miðstig og elsta stig, sjá umsjónarkennara í frétt hér fyrir neðan). Bjóðum sérstaklega velkomna í skólann 7 nemendur sem eru að fara hefja nám í 1. bekk.
Leyre mun áfram sjá um íþróttakennslu. Ásrós Helga hefur verið ráðin í kennslu í mynd,-og handmennt. Lilja Lalíla hefur verið ráðin sem skólaliði/húsvörður í stað Nonna. Sigmundur mun sinna skólaakstri og munu þeir nemendur sem nýta hann fá skipulag aksturs í viðtölum.
Leiðbeiningar um innskráningu í Mentor má finna hér
Skóli hefst svo samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 23. ágúst.
Með ósk um farsælt skólastarf
Starfsfólk G.Þ.