Erna Höskuldsdóttir | fimmtudagurinn 7. mars 2013
Góða þátttaka í skólarkaffi nemenda í 7.-8. bekk
Um síðustu helgi stóðu nemendur í 7.-8. bekk með aðstoð umsjónarkennara og foreldra fyrir hinu árlega Sólarkaffi í Félagsheimilinu á Þingeyri. Gaman var að sjá hvað margir létu sjá sig þrátt fyrir að sólin hafi verið sparsöm á geisla sína síðustu misseri. Á borðum voru ýmsar girnilegar kræsingar sem fylltu maga ánægðra gesta.
Takk fyrir okkur nemendur í 7.-8. bekk í G.Þ.