Erna Höskuldsdóttir | sunnudagurinn 5. janúar 2014
Gleðilegt nýtt ár
Starfsfólk Grunnskólans á Þingeyri óskar nemendum, foreldrum og velunnurum skólans gleðilegs nýs árs með þökk fyrir samstarfið á árinu sem var að líða. Skólinn hefst samkvæmt stundaskrá kl. 10:00 mánudaginn 6. janúar eftir jólaleyfi.
Samkvæmt hefðum skólans þurfa nemendur ekki að mæta fyrr en kl.10:00 í skólann eftir ævintýri álfa og trölla á Þrettándanum. Hvetjum alla nemendur að klæða sig upp og halda í skemmtilega hefð. Góða skemmtun :)
Nokkrir punktar fyrir vikuna:
- Tónlistarskólinn byrjar fimmtudaginn 9. janúar (samkv. skilaboðum frá Tuuli).
- Valtímar á unglingastigi hefjast ekki fyrr en vikuna 13.-17. janúar. Eyða myndast í stundatöflu nemenda þangað til. Þegar valið er komið á hreint verður gefin út ný stundaskrá.
- Umsjónarkennari á miðstigi verður í leyfi til 8. janúar, kennarar hjálpast að við að fylla í hennar skarð.
- Nemendur á yngstastigi ljúka sundviku dagana 13.-17. janúar, vegna daga sem féllu niður í desember. Nánar um það þegar nær dregur.