Erna Höskuldsdóttir | föstudagurinn 8. apríl 2022
Gleðilega páska
8. apríl er síðasti skóladagur fyrir páskaleyfi. Í morgun hélt nemendaráð hið árlega páskabingó sem allir nemendur og starfsfólk skólans spiluðu "á sal".
Þeir sem unnu bingó fengu páskagotterí og hinir sem ekki voru eins heppnir reyndu að samgleðjast samnemendum sínum.
Eigið notalega páska í vonandi góðu veðri. Skólinn hefst aftur eftir páskaleyfi þriðjudaginn 19. apríl kl. 8:10 samkvæmt stundaskrá