Erna Höskuldsdóttir | mánudagurinn 25. september 2017
Fundur með sviðstjórum skóla-, og tómstundasviðs
Á morgunn þriðjudaginn 26. september verður fundur í grunnskólanum kl. 20 með sviðstjórum skóla-, og tómstundasviðs.
Á fundinum gefst foreldrum tækifæri til að koma að mótun nýrrar skóla,- og menntunarstefnu Ísafjarðarbæjar, allt frá leikskóla yfir í grunnskóla.
Fundurinn er bæði fyrir foreldra barna í leikskólanum og grunnskólanum.
Skólamál verða rædd, kaffi á könnunni og léttar veitingar í boði.
Hlökkum til að sjá ykkur.