Erna Höskuldsdóttir | þriðjudagurinn 26. mars 2019
Fulltrúar skóla,-og tómstundasviðs á Þingeyri
Margrét Halldórsdóttir og Guðrún Birgisdóttir frá Skóla og tómstundasviði Ísafjarðarbæjar ætla að vera á Þingeyri fimmtudaginn 4. apríl frá kl. 9-14 í Blá bankanum og skólunum tveim, G.Þ. og Laufás. Þær bjóða upp á viðtalstíma frá kl. 11-13.
Þeir sem vilja fá viðtal við þær stöllur er bent á að senda þeim beiðni um viðtal á netföngin þeirra, margreth@isafjordur.is og gudrunbi@isafjordur.is
Hvetjum foreldra og þá sem hafa áhuga á því að ræða við þær um skólamál og tómstundir og fl. sem snýr að skóla, og fjölskyldumálum til að nýta tækifærið.