Erna Höskuldsdóttir | fimmtudagurinn 25. október 2012
Föstudagurinn 26. október
Komið þið sæl !
Föstudaginn 26. okt. munu kennarar og aðrir starfsmenn Grunnskólans á Ísafirði heimsækja skólann okkar á Þingeyri. Tilgangur ferðarinnar er að kynna sér starfsemi skólans og þá breyttu kennsluhætti sem unnið hefur verið að í skólanum á Þingeyri að undanförnu (opinn skóli og einstaklingsmiðað nám). Hópurinn mun koma um kl.10:00 og kynna sér kennslu og vinnu með nemendum og síðan munu starfsmenn beggja skólanna hittast á sameiginlegum fundi. Vegna þess munu
nemendur þurfa að fara heim einni kennslustund fyrr en stundaskrá dagsins segir til um.
Vonum að breytingarnar raski ekki plönum ykkar Góða helgi.