Fjarmálavit-elsta stig
Það hefur verið nóg að gera undanfarna daga hjá Fjármálaviti. Leiðbeinandi frá Fjarmálaviti heimsótti nemendur á elsta stigi Grunnskólans á Þingeyri þriðjudaginn 6. október sl. Þeir heimsækja fjölmarga grunnskóla á öllu landinu þar sem nemendur fá innsýn í mikilvægi þess að setja sér markmið í fjármálum og að spara. Nemendur tóku leiðbeinanda Fjármálavits vel og sýndu því sem hann hafði fram að færa mikinn áhuga og tóku þátt í verkefnavinnu. Það verður að segjast eins og er að það leynast víða fjármálasnillingar - og lang flestir nemendur komu með tillögur og hugsanir langt út fyrir efnið.
Takk fyrir komuna til okkar !
Meira er hægt að skoða og lesa um á Facebook síðu Fjármálavits.