Erna Höskuldsdóttir | þriðjudagurinn 1. apríl 2014
Eitthvað blátt í tilefni alþóðlegsdags einhverfu
Styrktarfélag einhverfra hefur minnt á alþjóðadag einhverfunnar sem hefur verið haldinn 2. apríl undanfarin ár. Blár er einkennislitur einhverfunnar og langar félaginu til að gera eitthvað skemmtilegt í samstarfi við hress og kát skólabörn. Markmiðið er að fá sem flest börn til að mæta bláklædd í skólann/leikskólann þennan ágæta miðvikudag í byrjun apríl. Þar sem við í Grunnskólanum á Þingeyri erum hress og kát skólabörn ætlum við að leggja þessu lið og mæta í einhverju bláu þennan dag, þarf ekki að vera mikið heldur bara eitthvað örlítið blátt.