Einleikur um hugrekki og vináttu
Sl. fimmtudag fóru nemendur í 1. bekk og elstu nemendur leikskólans í leikhúsferð til Ísafjarðar. Um var að ræða leiksýningu í Edinborgarhúsinu sem Þjóðleikshúsið bauð á. Leikritið sem krakkarnir sáu heitir Lofthræddi örninn Örvar. Oddur Júlíusson er leikari sýingarinnar og Björn Ingi Hilmarsson er leikstjóri.
Örvar er örn sem er svo skelfilega óheppinn að vera lofthræddur.
Hann þráir heitt að geta flogið óhræddur um loftin blá og með hjálp vinar síns músarrindilsins reynir hann að yfirvinna óttann. Þjóðleikhúsið frumsýndi sýninguna í Vestmannaeyjum þann 6.október sl. og hóf að henni lokinni í hringferð um landið og býður börnum á sýninguna þeim að kostnaðarlausu.
Takk kærlega fyrir okkur