Erna Höskuldsdóttir | föstudagurinn 6. nóvember 2015
Dagur eineltis
Dagur eineltis er 8. nóvember næst komandi. Nemendaráð í samstarfi við starfsfólk skólans hafa ákveðið að minna á jákvæð samskipti með því að koma í einhverju grænu í skólann mánudaginn 9. nóvember nk.
Jákvæð og uppbyggileg samskipti láta okkur líða vel. Í stefnu skólans er lagt m.a. áherslu á samheldni og henni höfum við náð þegar við finnum að við erum hluti af hópnum. Ný og uppfærð eineltisáæltun er á tenglagreininn hér til vinstri.