Erna Höskuldsdóttir | fimmtudagurinn 25. apríl 2013
Breytingar á skóladagatali
Breytingar hafa orðið á síðustu dögum skóladagatalsins. Græni dagurinn verður 28. maí, Vorgleðin með leikskólanum Laufás verður 29. maí og skólaslitin færast til 31. maí. Breytingar þessar voru samþykktar á fræðslunefndarfundi í síðustu viku. Nánari upplýsingar um skipulag og tímasetningar verða auglýstar þegar nær dregur.
Annars þakka starfsmenn skólans fyrir veturinn sem samkvæmt dagatalinu er lokið. Vonum að sólin fari að skína meira á okkur. Gleðilegt sumar