Baráttudagur gegn einelti
Þann 8. nóvember ár hvert er baráttudagur gegn einelti.
Hann var fyrst haldinn á Íslandi árið 2011 og Grunnskólinn á Þingeyri hefur alltaf verið með á einn eða annan hátt. Við erum jú alltaf að berjast gegn einelti, en á þessum degi er sértaklega hugað að því og rætt um varnir gegn einelti og hvernig við getum upprætt það.
Í ár ákváðum við að gera það með því að breiða út kærleika og ást, því einelti þrífst ekki á kærleika og ást.
Allir nemendur - og kennarar - klipptu út hjörtu og skrifuðu eitthvað fallegt á þau til þess að fara svo með þau út fyrir skólann og breiða út kærleikann. Senda til vina eða skólafélaga (heim til þeirra) eða til fjölskyldunnar.
Svo gekk nemendaráðið í allar stofur með sáttmála gegn einelti sem nemendur og starfsfólk skrifaði undir. Þetta hefur verið gert í nokkur skipti í kringum þennan dag, en slíkan sáttmála þarf alltaf að endurnýja þar sem nemendur og starfsfólk kemur og fer á milli ára.
Allir dagar eru baráttudagar gegn einelti - því í Grunnskólanum á Þingeyri líðst ekki einelti - og saman vinnum við gegn því með kærleika og ást.