Erna Höskuldsdóttir | þriðjudagurinn 28. febrúar 2017
Árshátíð Grunnskólans á Þingeyri 1. mars
Miðvikudaginn 1. mars verður árshátíð Grunnskólans á Þingeyri haldin í Félagsheimilinu á Þingeyri. Nemendur hafa undanfarin misseri verið að undirbúa og leika söng,- og leikritið Konungur ljónanna. Frumsýning verður kl. 10 og mun leikskólinn Laufás verða með fyrsta atriðið á þeirri sýningu og ávextir í boði í hléi. Seinni sýning verður kl. 20 og sjoppa í hléi.
Aðgangseyri er 1500 kr. fyrir 16 ára og eldri.