Árshátíð G.Þ.
Nú er nóg um að vera í Grunnskólanum á Þingeyri þar sem nemendur og starfsfólk eru að undirbúa árshátíðina sem verður haldin föstudaginn 4. apríl. Mikil samvinna hefur verið í gangi þar sem nemendur eru að setja upp og æfa eitt leikrit saman í stað þess að hver nemendahópur sé með sitt atriði. "Lífið í skóginum" verður frumsýnt í Félagsheimilinu föstudaginn 4. apríl kl. 10 ásamt atriði frá börnunum í Leikskólanum Laufás. Um kvöldið er 2. sýning sem hefst kl. 19:30. Til þess að gefa fleirum kost á að sjá sýninguna hefur verið bætt við 3. sýningunni laugardaginn 5. apríl kl. 14.
Miðaverð er 1000 kr. fyrir 16 ára og eldri. Frítt er fyrir börn á grunn-,og leikskólaaldri.