Alþjóðlegi netöryggisdagurinn 5. febrúar 2013
Alþjóðlegi netöryggisdagurinn var haldinn hátíðlegur í tíunda sinn þann í dag. Þemað í ár er "Réttindi og ábyrgð á netinu". Yfir 70 þjóðir um allan heim stóðu fyrir skipulagðri dagskrá dag. Netöryggismiðstöðvar 30 Evrópuþjóða, sem mynda samstarfsnetið Insafe, og yfir 40 önnur lönd leiddu í dag saman ýmsa hagsmunaðila til þess að vekja athygli á og ræða netið frá ýmsum hliðum. Samstarfsnetið hefur látið framleiða stutta auglýsingu til þess að styðja við átakið, en hún verður aðgengileg á netinu og verður m.a. sýnd í sjónvarpi næstu daga.
Við hvetjum ykkur til að kíkja á auglýsingna og ræða þau atriði sem vert er að hafa í huga varðandi netöryggi og ábyrgð á netinu
Aðgát skal höfð í nærveru sálar, LÍKA Á NETINU.
Slóðin er: http://www.youtube.com/watch?v=kJuTjIbQlEc