Erna Höskuldsdóttir | þriðjudagurinn 12. mars 2013
Á skíðum skemmti ég mér trall lalla la
Ákveðið hefur verið að fara í skíðaferð með alla nemendur skólans miðvikudaginn 13. mars, ef veður leyfir. Farið verður á skíðasvæðið í Tungudal. Við viljum biðja ykkur um að hafa eftirfarandi í huga varðandi ferðina:
- Nemendur mæti með búnað á venjulegum tíma kl. 08:10. Sérstakt skipulag gildir um akstur nemenda úr sveitinni, sem þeim verður kynnt. Skólinn mun láta vita í tíma ef fresta þarf ferðinni vegna óhagstæðs veðurs.
- Hafa þarf meðferðis viðeigandi búnað til að nota í brekkunum s.s. skíði, bretti, snjóþotur, þoturassa eða sleða. Skíða- og brettaleiga er á svæðinu en takmarkaður fjöldi af búnaði, verð 2.000 kr. (skíði+skór, eða bretti+skór) og 1.000 bara fyrir skíði. Gjaldfrítt er í lyftur.
Öryggisins vegna eru tilmæli bæði frá skóla og starfsmönnum skíðasvæðisins að allir verði með hjálma á höfði. Best er að hver komið með sinn eigin hjálm þar sem eingöngu eru til um 40 hjálmar í skálanum til útláns og fleiri skólar en G.Þ. verða á svæðinu.
- Klæðnaður er líka mikilvægur, þ.e. að nemendur séu vel klæddir til útiveru í 3 - 4 klukkustundir.
- Mikilvægt að hafa meðferðis gott nesti. Þeir sem eru í mataráskrift munu fá matarpakka frá Leikskólanum um hádegisbilið. Þeir sem ekki eru í mat þurfa hins vegar að hafa með sér nesti. Í skíðaskálanum bjóða kennarar upp á heitt kakó sem þeir hafa meðferðis. Einnig er hægt að kaupa samlokur, pylsur og drykki í skíðaskálanum.
- Áætluð heimkoma er kl.13:30. Ef einhverjir nemendur verða lengur, eru foreldrar vinsamlegast beðnir um að tilkynna það til skólans. Þeir munu þá sjálfir tryggja heimferð þeirra.
- Skíðaferð er skóladagur nemenda. Ef einhverjir nemendur taka ekki þátt í ferðinni, verður kennsla fyrir þá í skólanum. Leyfi eða veikindi tilkynna foreldrar til skólans eins og um venjulegan skóladag sé að ræða. Starfsfólk skólans verður á skíðasvæðinu og hægt að hafa samband í síma 450-8370.
Ef einhverjir foreldrar vilja koma eru þeir að sjálfsögðu velkomnir á skíðasvæðið með okkur
Skólastjóri og kennarar